Decoration
Velkomin á stílisti.is
Ég heiti Sandra Björg Gunnarsdóttir og er þessi síða til að kynna þjónustu mína en ég er útskrifuð sem útlitsráðgjafi frá The Academy of Colour and Style.
Ég tek að mér förðun, litgreiningu og fatastíl hvort sem er fyrir einstaklinga eða hópa.

Hvað er stílisti/útlitsráðgjafi?

Alltaf er að verða mikilvægara og mikilvægara að koma vel fyrir í þjóðfélaginu í dag, hvort sem það er í viðskiptalífinu eða félagslífi hvers einstaklings.
Margir þættir vinna saman við að finna rétta útlitið fyrir hvern og einn.
Útlitsráðgjafi vinnur að því að finna bestu litina og bestu sniðin sem hentar hverjum og einum.
Einnig sýna útlitsráðgjafar hvernig á að blanda litum saman hvort sem það er í fatavali eða förðun.

Nokkur ráð varðandi förðun

Förðun
  • Miklu máli skiptir að velja réttan lit á augu. Fer það mikið eftir augnlit og fatavali. Einnig skal hafa í huga hvert tilefnið er og tíma dags.
  • Við kennum þér hvernig þú átt að mála þig, ekki aðeins litaval heldur allt eftir því hvernig augu þín liggja og á hvaða aldri þú ert.

  • Farði
  • Ef farði er ekki valinn rétt geta auðveldlega skapast vandamál í húðinni, hún verður þurr, of feit og jafnvel getur farði skapað húðvandamál.
  • Mikilvægt er að velja réttan lit á andlit miðað við lit á líkama og andlitið sjálft.
  • Algengt er orðið að hægt er að fá ráðgjöf hjá snyrtivörubúðum en raunin er ekki alltaf sú.
  • Við kennum þér hvernig skal velja og einnig hvernig best er að bera farða á svo að þú lýtir sem best út.
  • Þjónustan sem ég býð uppá

    Einstaklingar
  • Ég tek fyrir einstaklinga, kem heim til þín og litgreini, kenni þér að farða þig og fer í gegnum fataskápinn og ter rækilega til.
  • Einnig býð ég upp á aðstoð við val á nýjum fötum.
  • Ég hjálpa þér að finna þinn stíl.

  • Hópar
  • Ég tek fyrir allar stærðir af hópum þar sem ég litgreini hvern og einn léttilega, kenni að farða og sýni hverjum og einum hvaða snið fara þeim best.
  • Tilvalið fyrir t.d. saumaklúbba, vinnustaði og vinahópa.

  • Förðun
  • Ertu að fara á stefnumót? Út að borða? Á leiðinni á ball?
  • Tek fyrir bæði einstaklinga og hópa.
  • Veislur
  • Brúðkaup - fermingar - afmæli - þemaveislur. Bjóðum upp á allan pakkan.
  • Förðun
    Skreyting á sal
    Aðstoð við fataval
    Hafðu samband við mig
    Til að hafa samband við mig getur þú annaðhvort sent mér tölvupóst á netfangið stilisti@stilisti.is eða með því að hringja í mig hvenær sem er.

    Sandra Björg Gunnarsdóttir
    s: 869 3148